26/04/2024

Umsóknarfrestur um styrki til menningarverkefna að renna út

Frá opnun vefjarins fyrir mánuðiÍ fréttatilkynningu frá Menningarráði Vestfjarða kemur fram að umsóknarfrestur til Menningarráðs Vestfjarða vegna styrkja árið 2007 rennur út föstudaginn 2. nóvember. Upplýsingar um styrkina og úthlutunarreglur má finna á vefnum www.vestfirskmenning.is undir liðnum Styrkir. Þar er einnig hægt að ná í umsóknareyðublað eða senda styrkumsókn rafrænt í gegnum netið.

Tekið er við umsóknum sem sendar eru rafrænt gegnum netið til miðnættis föstudagskvöldið 2. nóvember, en umsóknir sem sendar eru með pósti þurfa að vera póststimlaðar þann dag. Menningarráð Vestfjarða hvetur alla þá sem eru að velta fyrir sér að senda inn umsókn að bretta upp ermarnar, hefjast handa og gera sitt besta. Hálfnað er verk þá hafið er og hitt er bara vinna, segir í tilkynningunni.

Menningarráð minnir jafnframt á þau margrómuðu reynsluvísindi að það eru aðeins þeir sem róa til fiskjar sem fá.