03/05/2024

Umhverfisviðurkenningar

Á HólmavíkÞann 17. júní hyggst Umhverfisnefnd Strandabyggðar veita umhverfisviðurkenningar til þeirra sem þykja til fyrirmyndar og skara fram úr í umgengni og snyrtimennsku við hýbýli sín og fyrirtæki. Nefndin leitar nú til íbúa með tilnefningar til þessara viðurkenninga og er hægt að senda inn tilnefningar hér á vefnum. Veittar verða viðurkenningar í þremur flokkum, fyrir hús í þéttbýli, bændabýli, fyrirtæki og stofnanir. Hægt er að senda inn tilnefningar til 25. maí nk., og einnig er hægt að senda ábendingar skriflega á skrifstofu Strandabyggðar, merkt "Umhverfisviðurkenningar".