26/04/2024

Tveir hugmyndafundir um Hamingjudaga

Í þessari viku verða haldnir tveir kynningarfundir um bæjarhátíðina Hamingjudaga á Hólmavík. Opinn fundur verður í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld, miðvikudaginn 28. apríl kl. 19:30. Verður sá fundur hugarflugsfundur þar sem leitað verður eftir hugmyndum og lausnum frá viðstöddum. Einnig verða kynntar þær hugmyndir og ákvarðanir varðandi Hamingjudaga sem þegar liggja fyrir. Reiknað er með að þessum fundi ljúki kl. 21 og segir í tilkynningu að það sé um að gera að leyfa yngri kynslóðinni að mæta líka og færa fram sínar hugmyndir. Í hádeginu á fimmtudaginn verða Hamingjudagar svo kynntir á vikulegum súpufundi Þróunarsetursins og Arnkötlu 2008 sem haldinn er á Café Riis og hefst kl 12:00.