23/04/2024

Nýr tómstundafulltrúi hjá Strandabyggð

580-holm14

Íris Ósk Ingadóttir hefur verið ráðin í starf tómstundafulltrúa hjá sveitarfélaginu Strandabyggð til eins árs í fjarveru Estherar Aspar. Íris Ósk útskrifaðist úr tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands nú í sumar. Hún hefur meðfram námi starfað hjá viðburðafyrirtækinu CP og þar tekið þátt í uppsetningu og framkvæmd ýmissra viðburða, einnig hjá Þjóðskrá Íslands og verið frístundaleiðbeinandi hjá frístundaheimilinu Glaðheimum svo eitthvað sé nefnt. Íris Ósk mun fyrst koma til starfa um miðjan ágúst í nokkra daga en svo til fulls undir lok ágúst. Þetta kemur fram á vef Strandabyggðar – www.strandabyggd.is.