26/04/2024

Tilnefningar til Umhverfisverðlauna 2009

Ferðamálastofa hefur
auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2009 og rennur frestur til að tilnefna fyrirtæki, félag eða einstakling út föstudaginn 30. október. Verðlaunin
hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina
athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna
umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Ferðaþjónustan byggir
afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu
að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra
að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð
greinarinnar.

Allir þeir sem
tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að
viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta koma til greina sem verðlaunahafar. Það
geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða sveitarfélög. Tilnefningar sendist til skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu
29, 600 Akureyri eða með tölvupósti á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir
30.
október næstkomandi.