20/04/2024

Hlutfallslega fleiri börn veikjast nú af inflúensu

Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og
vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0-9 ára. Þetta er marktæk breyting frá því
í júlí og ágúst, þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15-30 ára.  Á sama tíma og inflúensan leggst hlutfallslega meira á
börn en áður fækkar veikindatilfellum í aldurshópnum 15-30 ára. Sömu breytingu á
aldursdreifingu inflúensusjúklinga má sjá hjá þeim sem eru með staðfesta
inflúensu A (H1N1) samkvæmt veirufræðideild
Landspítala.


 
 
Fjarvistaskráning grunnskólanemenda í Mentor staðfestir
sömuleiðis þessa fjölgun tilfella hjá börnum. Fjarvistum nemenda í grunnskólum
landsins fjölgaði mjög í október.
 
Á reglubundnum símafundi fulltrúa
almannavarna og heilbrigðiskerfisins í morgun komu fram ákveðnar vísbendingar um
að inflúensufaraldurinn hefði mögulega náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu, á
Akureyri og víðar. Annars staðar á landsbyggðinni er ástandið sagt svipað og var
í vikunni þar á undan en á stöku stað er faraldurinn hins vegar í sókn, til
dæmis á Húsavík. Starfsmenn heilsugæslustöðva sjá víða glögg merki um að
hlutfallslega fleiri börn veikist nú en áður.
 
Á Landspítala
voru í morgun fjörtíu og þrír sjúklingar með inflúensuna, þar af ellefu á
gjörgæsludeild. Átta voru lagðir inn vegna veikinnar en enginn var útskrifaður.
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri eru  þrír inflúensusjúklingar þessa
stundina, enginn þeirra á gjörgæsludeild.