26/04/2024

Sýning um rauðhærðar konur opnar þann 1. júlí

Sýning frá Nínu Gautadóttir myndlistarmanni verður á Galdrasafninu á Hólmavík í sumar. Sýningin hennar samanstendur af safni mynda sem hún hefur safnað frá árinu 1988 en myndirnar hafa það sameiginlegt að birta myndir af rauðhærðum konum í myndlist. Sagan segir að á 16. og 17. öld hafi um 20.000 konur í Evrópu verið brenndar á báli, þá oft rauðhærðar og þær dæmdar fyrir að hafa verið í tygjum við satan og að vítislogar hafi litað hár þeirra. Hér á landi voru það aftur á móti 20 karlmenn og ein kona sem voru brennd á báli fyrir galdra.

Myndir Nínu eru þó ekki af galdrakonum, heldur af rauðhærðum konum eins og listamennirnir túlkuðu þær hver á sínum tíma, allt frá forn-egyptum og fram á okkar dag. Sýningin stendur yfir
frá 1. júlí til 15.september.