04/05/2024

Styrkir vegna námskostnaðar og tækjakaupa fatlaðs fólks

640-snjor5

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki vegna námskostnaðar eða tækjakaupa. Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfssemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu. Umsóknafrestur er til 3. janúar 2014 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags. Umsóknaeyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa eru að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.

• Félagsþjónustan við Djúp,  Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík, sími 450-7000/ 450-5900 www.bolungarvik.iswww.sudavik.is

• Ísafjarðarbær, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður, sími 450-8000  www.isafjordur.is

• Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps,  Höfðagötu 3, 510 Hólavík, sími 451-3510/ 434-7880.  www.strandabyggd.is / www.reykholar.is

• Félagsþjónusta Vestur- Barðastrandasýslu, Aðalstræti 75, 450 Patreksfjörður, sími 450 – 2300/ 456-2539 www.vesturbyggd.is / www.talknafjordur.is