03/05/2024

Strandabyggð býður út vinnu við viðbyggingu leikskóla

Strandabyggð hefur óskar eftir tilboðum í annan áfanga viðbyggingar við leikskólann Lækjarbrekku við Brunnagötu á Hólmavík. Viðbyggingin var reist í haust og er frágangi utanhúss lokið að undanskilinni málun. Á vef sveitarfélagsins kemur fram að í öðrum áfanga verksins skal ljúka við allan frágang utan- og innanhúss í viðbyggingunni með innréttingum og tengingum við eldra hús. Einnig á að vinna að breytingum í hluta eldra húss leikskólans. Viðbyggingin er 131 fermetri. Verklok eru áætluð 25. júlí 2017.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3 á Hólmavík og kosta útboðsgögnin kr. 5.000,- . Tilboð verða opnuð miðvikudaginn  1. mars 2017, kl. 11:00.