02/05/2024

Stofnun Hollvinafélags Gvendarlaugar hins góða í Bjarnarfirði

300-gvendarlaug-gomulSunnudaginn 20. júlí kl. 13:00 verður formlega stofnað Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða í Bjarnarfirði á Ströndum í minningu þeirra framsýnu eljumanna sem fyrir réttum 60 árum tókust á hendur það þrekvirki að byggja í sjálfboðavinnu sundlaug fyrir eigin fjármuni í þessu fámenna byggðarlagi. Framkvæmdir við hana hófust árið 1943 og var hún loks tekin í nokun árið 1947. Bygging Gvendarlaugar var samstarfsverkefni Grettis og Kaldrananeshrepps. Fyrsta verkefni félagsins verður að safna fjármunum svo unnt verði að ráðast í gerð vandaðrar áætlunar um nauðsynlegar framkvæmdir til viðhalds og endurbóta á lauginni.

Sundfélagið Grettir hefur hlotið styrk upp á 300 þúsund krónur frá UMFÍ til þess að bæta umhverfi sundlaugarinar.

Afkomendur þeirra sem byggðu laugina í upphafi og allir þeir fjölmörgu sem hafa í áranna rás notið mannvirkisins til sundnáms eða ánægjunnar vegna, auk þeirra sem hafa áhuga á að standa við bakið á félaginu og taka þátt í uppbyggingarstarfinu eru hvattir til að mæta á sundlaugarbakkann sunnudaginn 20. júlí næstkomandi og taka þátt í dagskrá sem hefst þar kl. 13:00 – ekki gleyma sundfötunum.

Þeir sem ekki eiga heimangengt þennan dag en hafa engu að síður áhuga á að leggja málefninu lið eru beðnir um að senda nafn og netfang til Sundfélagsins Grettis á netfangið finnurol@gmail.com og mun þá verða haft samband við viðkomandi að stofnfundi loknum.

580-gvendarlaug2580-gvendalaug1