25/04/2024

Spilavist á sunnudagskvöld

Óheppileg nólóspilForeldrafélag Grunnskólans á Hólmavík stendur fyrir félagsvist í Félagsheimilinu á Hólmavík á sunnudagskvöld kl. 20:00. Vegleg verðlaun eru í boði og er aðgangseyrir kr. 500 fyrir 13 ára og eldri. Ágóði af spilakvöldinu á að renna til kaupa á stafrænni vídeótökuvél fyrir Grunnskólann ásamt tölvu með tilheyrandi klippibúnaði, en foreldrafélagið hyggst gefa skólanum slíkan búnað í vetur. Allir eru hjartanlega velkomnir á spilavistina.