20/04/2024

Snjóaði í fjöll í Árneshreppi

Þegar veðurathugunarmaður í Litlu-Ávík í Árneshreppi á Ströndum kom á fætur í morgun, rétt fyrir kl. 6:00 til að senda fyrsta veðurskeyti dagsins sá hann að talsvert hafði snjóað í fjöll. Í Árnesfjalli við Trékyllisvík náði snjólínan allt niður í 250 metra og víða niður í 300 metra hæð yfir sjávarmáli. Hitinn fór niður í 3,4 stig í nótt í Litlu-Ávík og talsverð rigning hefur verið í Árneshreppi undanfarna tvo sólarhringa og mjög svalt í veðri. Það er því vel við hæfi að spyrja hvort haustið sé komið.