29/04/2024

Skjaldbakan í Reykjavík

Gamansami einleikurinn skjaldbakan leikinn af strandamanninum Smára Gunnarssyni og saminn í samstarfi við leikstjórann Árna Grétar Jóhannsson verður núna sýnd í Reykjavík. Verkið er byggt á þeim stóratburði þegar risaskjaldbaka kom að landi á Hólmavík árið 1963. Skjaldbakan var 2 metrar og 360kg og þótti mikið sæskrímsli, en þetta var í fyrsta sinn sem vitað er um að slíkt dýr hafi komið að landi á Íslandi. Skjaldbakan er nú í eigu Náttúrugripasafns Íslands. Verkið verður sýnt í leikhúsinu Norðurpóll á Sefgörðum 3. Sýningartímarnir eru miðvikudagurinn 24. ágúst klukkan 21:00 og fimmtudagurinn 25. ágúst klukkan 21:00. Miðaverðið er 2000 krónur og er hægt að panta miða hér: http://midi.is/leikhus/1/6558/




Verkið fjallar um ungann mann sem kynnist veiðimanninum og þótt þeir fari í sitt hvora áttina þá eru á milli þeirra órjúfanleg tengsl. Veiðimaðurinn tekur loforð af hinum unga manni að passa upp á bát fyrir sig þegar hann flytur frá þorpinu. Þegar báturinn dúkkar upp aftur mörgum árum seinna og minningar um veiðimanninn og skjaldbökuna sem hann dró að landi streyma fram þá koma fram leyndir draumar hins unga manns um veiðimennsku, sjómennsku og almenna karlmennsku. Allt kristallast þetta auðvitað í einu merkasta afreki veiðimannsins, skjaldböku ævintýrinu og ferðalagi hennar til Reykjavíkur.


Hægt er að nálgast kort að leikhúsinu hér: http://ja.is/kort/#q=index_id%3A1529797&x=353806&y=409867&z=9