26/04/2024

Sjómannadagurinn á Hólmavík

580-sjomann-h1

Að venju verður glæsileg dagskrá í boði björgunarsveitarinnar Dagrenningar á sjómannadaginn. Sunnudaginn 5. júní verður marhnútaveiðikeppni fyrir ungu kynslóðina kl. 10:00. Verðlaunaskjöl verða afhent fyrir flesta veidda fiska, mesta veginn afla auk þess fyrir stærsta og minnsta fiskinn. Klukkan 12:00 byrjar skemmtidagskrá við höfnina, brettahlaup, reiptog og fleira. Klukkan 14:00 verður kaffisala í Félagsheimilinu á Hólmavík. Kaffið kostar kr. 2000 fyrir 12 ára og eldri en 500 kr. fyrir 6-11 ára. Posi á staðnum. Allur ágóði rennur til styrktar björgunarsveitinni Dagrenningu á Hólmavík.