25/04/2024

Hver á sér fegra föðurland?

Hljómsveitin Árstíðir og trúbadorarnir Svavar Knútur og Helgi Valur munu í sumar gera víðreist um fósturjörðina og koma við í helstu bæjum og sveitum hringinn í kringum landið. Gengur tónleikaferðalagið undir nafninu Hver á sér fegra föðurland?, en listamönnunum þykir einmitt vænt um landið og vilja hvetja landsmenn til að skipuleggja ferðalög sín innanlands í sumar. Listamennirnir munu koma fram í samkomuhúsum, kirkjum, félagsheimilum og öldurhúsum víða um land og er Hólmavíkurkirkja meðal áfangastaða

Tónleikaferðalagið er unnið í samvinnu við Kraum og Rás 2 og er hluti af Innrásinni, stuðningi Kraums við tónleikahald innanlands og árlegri tónleikaferð Rásar 2 um landið. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni. Hugmyndin á bakvið átakið á sér meðal annars rætur í því að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, frekar en hérlendis.  Stuðningur við listamenn miðast oftar en ekki við útrásarverkefni.

Árstíðir hafa gert garðinn frægan undanfarin misseri og er skemmst að minnast þess að lag þeirra, Sunday Morning var valið vinsælasta lag Rásar 2 tvær vikur í röð á dögunum. Sveitina skipa þeir Daníel Auðunsson, Ragnar Ólafsson og Gunnar Már Jakobsson gítarleikarar, Jón Elísson píanóleikari og Hallgrímur Jónas Jensson sellóleikari. Árstíðir þekkjast ekki síst á ómfögrum röddunum í anda gullaldarþjóðlagarokks 8. áratugarins. Þeirra fyrsta plata kom út nú í júní og hefur hlotið góðar viðtökur.

Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð sem forsprakki hljómsveitarinnar Hrauns, sem hefur sent frá sér tvær plötur undanfarin ár. Sveitin er ekki síst þekkt fyrir lögin Ástarsaga úr Fjöllunum, Komdu og Clementine en einnig hefur Svavar undanfarin ár gert víðreist sem trúbador og m.a. farið í tónleikaferðalög til Ástralíu, Þýskalands og víðar. Svavar Knútur gaf í vor út plötuna Kvöldvöku sem hefur hlotið frábæra dóma í fjölmiðlum en hún er einungis seld á tónleikum.

Helgi Valur er þekktur fyrir líflega framkomu sína og fjölbreytilegan stíl, en þessi óviðjafnanlegi spaugfugl hefur farið víða um land undanfarin ár. Helgi Valur gaf fyrir nokkrum árum út plötuna Demise of faith og vinnur nú að nýrri plötu sem heitir Electric Ladyboyland. Hann var valinn Trúbador Rásar 2 árið 2004 og hefur komið víða við síðan.

Dagskrá Tónleikaferðalagsins á Vestfjörðum:

28. júní sunnudagur – Flateyjarkirkja, Flatey
Tónleikar hefjast kl. 20

29. júní mánudagur – Sjóræningjasafnið á Patreksfirði
Tónleikar hefjast kl. 20

30. júní þriðjudagur – Tálknafjarðarkirkja, Tálknafirði
Tónleikar hefjast kl. 20

1. júlí Miðvikudagur – Hlaðan í Arnardal við Ísafjarðardjúp
Tónleikar hefjast kl. 20

2. júlí fimmtudagur – Hólmavíkurkirkja, Hólmavík
Tónleikar hefjast kl. 20