26/04/2024

Sjálfboðaliðar leggja parket

Parket - ljósm. Ingimundur PálssonÍ gær var drifið í því að leggja parket á gólf Félagsheimilisins á Hólmavík og lokið við verkið, en þetta er annar áfanginn í upplyftingu Félagsheimilisins. Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar sagði að í næsta áfanga yrði settar plötur í loftið á anddyrinu, en þar er ennþá ber steypan frá byggingu hússins. Vonast er til að það verði gert fyrir Góuballið, en um næstu helgi er þorrablót í húsinu og þá verður dansað á nýja parketinu undir spili hljómsveitarinnar Kokkteils sem tryllir fólkið í dansinum. Meðfylgjandi mynd af parketlögninni tók Ingimundur Pálsson og fleiri myndir eru á www.123.is/mundipals.

Það var mikill samhugur og kátína hjá sjálfboðaliðunum í gær, rétt eins og þegar málað var um daginn og enginn fékkst um þótt fötin yrðu öll í hvítum slettum. Aðgerð 4 og 5 verða síðan að sögn Ásdísar að endurnýja vatnslagnir í húsinu og loka þakkassanum.

Reikna má með að sviðið verði einnig tekið í gegn á næstunni í tengslum við uppsetningu á leikritinu Dýrunum í Hálsaskógi sem byrjað er að æfa í samvinnu Leikfélags Hólmavíkur, Grunnskólans á Hólmavík og Tónskóla Hólmavíkur.