29/04/2024

Séra Jón Ísleifsson í Bragganum á Hólmavík

Kvikmyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson verður sýnd í Bragganum á Hólmavík föstudaginn 14. október og hefst sýningin kl. 21:00. Myndin hlaut áhorfendaverðlaum Skjaldborgarhátíðarinnar í vor og hefur fengið frábærar viðtökur. Í heimildamyndinni segir frá séra Jóni Ísleifssyni sem var lengi sóknarprestur í Árnesi á Ströndum. Séra Jón lifir lífinu á sinn eigin sérstæða máta og af honum eru margar sögur bæði sannar og ósannar. Þegar myndin var tekin var svo komið að meirihluti sóknarbarna hafði skrifað undir vantraust á séra Jón og lýst því yfir að þau vilji ekki að hann starfi lengur sem sóknarprestur í Árnesprestakalli. 

Er séra Jón óhæfur prestur?  Eða eru aðrir kraftar að verki? Hvað sem því líður er séra Jón maður sem er staddur á miklum tímamótum.