26/04/2024

Sækja þarf um leyfi fyrir brennum og flugeldasýningum

Í fréttatilkynningu frá lögreglustjóranum á Vestfjörðum kemur fram að þeir sem hyggjast hlaða bálkesti til þess að kveikja í þeim á gamlárskvöld eða á þrettándanum eða hyggjast sækja um leyfi til sölu flugelda og til flugeldasýninga, þurfa að sækja um slík leyfi fyrir 6. desember. Vegna umsóknar um brennu, flugeldasýningar eða sölu flugelda skal tilgreina lögráða ábyrgðarmann og leggja fram vottorð frá vátryggingafélagi um ábyrgðartryggingu. Með umsókn um stóra brennu og sölu flugelda skal fylgja skriflegt starfsleyfi heilbrigðiseftirlits.

Umsóknareyðublöð og reglur um bálkesti og brennur, flugeldasýningar og sölu á flugeldum liggja frammi hjá sýslumönnum, á vefsíðu lögreglunnar á Vestfjörðum http://logreglan.is/utgafur.asp?cat_id=1254.

Leyfisgjald er 5.500.- fyrir brennuleyfi, sama fyrir flugeldasýningu og 3.300.- fyrir flugeldasölu. Nánari upplýsingar veitir Harpa Oddbjörnsdóttir í síma 450 3700.