23/04/2024

Reiðnámskeið Strandahesta

Nú er að hefjast reiðnámskeið fyrir börn og fullorðna á vegum Strandahesta. Námskeiðið stendur yfir frá 24.-29. júní næstkomandi. Kennt verður í litlum 4-6 manna hópa í sex skipti, klukkutíma í senn. Kennslan fer fram á Víðidalsá (rétt fyrir utan Hólmavík) á daginn og kvöldin allt eftir þörfum þáttakanda. Námskeiðið kostar 8000 kr. Fyrir þá sem að eru lengra komnir í að sitja og stjórna hesti verður boðið upp á stutta reiðtúra í nágrenni Hólmavíkur. Einnig verður boðið upp á sérstakan hóp fyrir óvana fullorðna. Upplýsingar og skráning er í síma 862-3263 og 451-3262 og á netfangið strandahestar@strandahestar.is.