19/04/2024

Teflt í samkomuhúsinu í Trékyllisvík

Skákhátíð á Ströndum hófst í kvöld með tvískákmóti í Hótel Djúpavík, á þjóðhátíðardaginn 17. júní. ÁS morgun, laugardag, klukkan 13 verður síðan hið árlega stórmót, sem stórmeistararnir Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson hafa unnið síðustu árin. Ákveðið hefur verið að færa mótið úr gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík í hið vistlega samkomuhús í Trékyllisvík. Þar verður keppt um 100 þúsund króna verðlaunapott, auk glæsilegra vinninga frá 66 Norður, Eddu, Forlaginu, Senu, Henson, Sögum útgáfu, UMF Leifi heppna o.fl.

Á laugardagskvöld fer fram ,,landsleikur" í fótbolta, þar sem gestir hátíðarinnar keppa við knáa liðsmenn úr Ungmennafélaginu Leifi heppna. Áhugasamir liðsmenn eru því beðnir um að taka með sér viðeigandi skó.

Á sunnudaginn klukkan 13 verður svo glæsilegur lokapunktur settur á skákhátíðina með hraðskákmóti í Kaffi Norðurfirði.

Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.