29/04/2024

Pub Quiz Hamingjudaga í kvöld

 Það eru sannkallaðir hamingjustraumar sem leika um íbúa í Strandabyggð þessa stundina. Fyrir stuttu síðan birti til á Hólmavík og menn litu heiðbláan og bjartan himinn í fyrsta skipti í allnokkurn tíma. Veðurspáin fyrir helgina er góð og bendir margt til þess að einna mestu hlýindin á landinu verði einmitt á Hamingjudögum á Hólmavík. Í kvöld verður hátíðinni haldið áfram, en þá fer fram Pub Quiz í Pakkhúsinu á Café Riis. Atburðurinn hefst kl. 21:00, en stjórnandi og spyrill er hin góðkunna Halla Steinólfsdóttir, bóndi í Ytri-Fagradal. Strandamenn eru hvattir til að mæta á atburðinn, ekkert kostar inn en til mikils er að vinna!