30/04/2024

Öskudagsball á Hólmavík

580-oskuball10
Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík heldur upp á gamlar hefðir og býður öllum börnum í Strandabyggð og nágrannasveitum að taka þátt í Öskudagsballi fyrir börnin miðvikudaginn 13. febrúar, klukkan 17:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Foreldrar er hvattir til að koma með krakkana sína, fara í þrautakóng og slá köttinn úr tunnunni. Verðlaun verða veitt fyrir frumlegasta furðufatabúninginn. Allir velkomnir.