02/05/2024

Óskað eftir ábendingum um tjaldsvæði á Hólmavík

Ánægðir tjaldgestir í aprílSveitarstjórn Strandabyggðar hefur ákveðið að leita eftir ábendingum og tillögum frá íbúum um hvernig bæta megi aðstöðu við tjaldsvæðið á Hólmavík. Svæðið sem er á skjólsælum stað, rétt við sundlaugina og félagsheimilið á Hólmavík, er afar vinsælt og sló aðsókn að því öll met síðastliðið sumar. Fjöldi gesta hafði þá viðdvöl og var svæðið fullsetið allmarga daga og voru tjöld, vagnar og húsbílar einnig á íþróttavelli innan við svæðið og á grasbala neðan við félagsheimilið. Frumlegar hugmyndir sem skapað gætu tjaldsvæðinu samkeppnisforskot umfram önnur slík eru sérlega vel þegnar.


Íbúar eru hvattir til að senda hugmyndir um úrbætur, aðstöðu og afþreyingu, jafnt stórar og smáar, á netfangið holmavik@holmavik.is, merktar "Tjaldsvæði" í síðasta lagi föstudaginn 8. október eða skila þeim á skrifstofu Strandabyggðar að Hafnargötu 19, 510 Hólmavík.