27/04/2024

Opið hús í Grunnskólanum á Hólmavík

Á miðvikudaginn 30. nóvember verður opið hús í Grunnskólanum á Hólmavík, kl. 13-14. Opna húsið er í tilefni af ADHD dögum í skólanum sem hafa staðið í viku. Markmiðið með verkefninu  er að auka fræðslu og skilning á ADHD röskun sem leiðir til betri hegðunar, líðan og viðhorfa í samfélaginu. Nemendur sýna verkefni sín á opna húsinu, myndband frá vikunni, tónlistaratriði og listaverk nemenda verður afhjúpað. Allir eru velkomnir á opna húsið.