03/05/2024

Norræn samvinna og margvísleg menningarverkefni fá styrki

Seinni styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fór fram við hátíðlega athöfn á Melrakkasetrinu í Súðavík þann 11. desember. Flutt var tónlist og haldin erindi, Melrakkasetrið kynnt og skoðað, auk þess sem styrkvilyrði voru afhent og að sjálfsögðu var boðið upp á kaffi og með því á eftir. Umsóknir sem komu til afgreiðslu það þessu sinni voru 78 talsins, en alls fengu 30 verkefni stuðning að upphæð 13.090.000.- samtals. Verkefnunum hefur þó fækkað um eitt, því einn styrkurinn var afþakkaður áður en til úthlutunar kom.

Þrjú verkefni fengu milljón í styrk að þessu sinni. Tvö þeirra snúast um samstarf við stofnanir á landsvísu og út fyrir landsteinana og stórar norrænar samkomur á Vestfjörðum á næsta ári. Annars vegar var þar styrkur til Þjóðbúningafélags Vestfjarða til að standa fyrir norrænum handverkssumarbúðum á Þingeyri og hins vegar til Félags sagnaþula til að standa fyrir norrænu sagnaþingi, einnig á Þingeyri. Þriðja verkefnið sem fékk milljón að þessu sinni var Skrímslasetrið á Bíldudal fyrir vinnu að öðrum áfanga í sýningu setursins.

580-mennstyrk
Hluti af styrkþegum utan við Melrakkasetrið – ljósm. Brian Berg

Menningarráð Vestfjarða auglýsir aftur eftir styrkumsóknum snemma á nýju ári og eru allir hvattir til að fara tímanlega að huga að spennandi verkefnum og áætlanagerð.

Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu stuðning frá Menningarráði Vestfjarða í desember 2010:

Þjóðbúningafélag Vestfjarða: Norrænar handverkssumarbúðir á Þingeyri – 1.000.000
Félag sagnaþula: Norrænt sagnaþing á Þingeyri – 1.000.000
Félag áhugamanna um skrímslasetur: Uppbygging á öðrum hluta Skrímslasetursins, kafbátur og göng – 1.000.000
Kómedíuleikhúsið: Vestfirskur skáldskapur á 57 mín – 750.000
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar: Uppsetning sýningar á Bátasafninu á Reykhólum í samstarfi við Minjasafnið á Hnjóti – 750.000
Fjölnir Már Baldursson: Búum til vestfirskt tungl – 600.000
Íþróttafélagið Höfrungur, leikdeild: Höfrungur á leiksviði – 600.000
Melrakkasetur Ísland: Efling sýningar Melrakkaseturs Íslands – 600.000
Smári Gunnarsson og Leikfélag Hólmavíkur: Skjaldbakan – 600.000
Menningarmiðstöðin Edinborg: Listviðburðir í Edinborgarhúsi – 600.000
Magnús Hávarðarson: Sönglagakeppni Vestfjarða 2011 – 600.000
Karl Ásgeirsson og Guðlaug Jónsdóttir: Veisla að vestan – vestfirsk matarmenning – 500.000
Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal: Sambahátíð – listahátíð til styrktar listasafni Samúels Jónssonar að Brautarholti í Selárdal – 500.000
Bláus Art ehf: Ferðin heim – 400.000
Þjóðfræðistofa: Húmorsþing – Vetrarhátíð á Ströndum – 300.000
Act alone: Vestfirska leikárið 2010-2011 – 300.000
Friðþjófur Þorsteinsson: Samantekt og úrvinnsla á tæknilegum upplýsingum fyrir ísfirsk menningar- og samkomuhús – 300.000
Páll Ernisson: Baráttan um Djúpið – Spil fyrir alla fjölskylduna – 300.000
Simbahöllin ehf: International residency of artists in Þingeyri 2011 – 300.000
Marsibil G. Kristjánsdóttir: Ein stök hús – 300.000
Minjasafn Egils Ólafssonar: Nútíminn verður til – 250.000
Magnús Hávarðarson: Úgáfa geisladisks með 14 lögum úr Sönglagakeppni Vestfjarða 2010 – 250.000
Tónlistarskóli Ísafjarðar: Árstíðir Vivaldis á Vestfjörðum – 200.000
Félag um Snjáfjallasetur: Kaldalónstónar – dagskrá á Hólmavík – 200.000
Magnús Óskarsson: Gerð leirmynda af skrímslasögum – 200.000
Malgorzata Lilja Nowak: Kórvilla á Vestfjörðum – 200.000
Skiptá, áhugamannafélag um menningu og listir: Tónleikahald á Vestfjörðum – 100.000
Rafn Hafliðason: Fjölskylduböndin – desemberuppbót – 70.000
Hafdís Ósk Gísladóttir: Fóður í firði, ljósmyndasýning og gjörningur – 70.000