Mikið er um að vera í skemmtanalífinu á Ströndum um helgina eins og flestar helgar. Í kvöld er árlegt þorrablót Hrútfirðinga í skólanum á Borðeyri og á Hólmavík stendur félagsmiðstöðin Ózon fyrir menningarkvöldi í Félagsheimilinu klukkan 20:00. Þar eru fjölmörg atriði til skemmtunar og er hátiðin opin öllum. Á sunnudag er svo skíðamót á vegum Skíðafélags Strandamanna í Selárdal, hefst það kl. 11:00.
![](http://strandir.saudfjarsetur.is/wp-content/uploads/atburdir/2005/150-bjarni_omar_menningarhatid.jpg)