29/04/2024

Námskeið í sápugerð á Hólmavík

Framundan er námskeið á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Hólmavík þar sem kennt verður hvernig sápa verður til. Algeng aðferð verður kennd og fleiri nefndar. Farið er yfir nokkrar glærur og að því loknu er sýnikennsla og eiga allir þátttakendur að geta búið til sápu eftir eigin uppskriftum að loknu námskeiðinu. Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 18.nóvember og stendur frá kl 19:30-22. Námskeiðsgjald er kr 6900 á hvern þátttakanda og er efnisgjald innifalið. Einnig verður hægt að kaupa efni á staðnum til að prófa sig áfram heima. Skráning er á www.frmst.is eða kristin@frmst.is (sími 8673164) og stendur til 15. nóvember.