
Þeir sem vilja taka þátt í bakstrinum eru beðnir um að mæta á spjallfund með undirbúningsnefndinni í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar á morgun, föstudaginn 7. janúar, milli kl. 17 og 18. Einnig gefst mönnum færi á að koma á framfæri hugmyndum um annað sem tengist þessum viðburði.
Þeir sem ekki komast á þessum tíma en vilja samt ólmir baka, geta einnig haft samband við einhvern úr undirbúningsnefndinni en hana skipa Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Valdemar Guðmundsson.