25/04/2024

Fyrsta skrefið að umhverfisvottun Vestfjarða

640-teista2
Í fréttatilkynningu frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga kemur fram að nú hafa sveitarfélögin á Vestfjörðum tekið stórt skref inn í framtíðina með því að gerast meðlimir hjá EarthCheck. Í tengslum við það hafa sveitarfélögin hafið vinnu sem miðar að því að umhverfisvotta öll níu sveitarfélögin á Vestfjörðum. Með þessu eru sveitarfélögin að skuldbinda sig til þess að taka mið af náttúrunni í öllum ákvörðunum sínum og tryggja sjálfbærni þeirra auðlinda sem til staðar eru á svæðinu.

Verkefnið er unnið af Fjórðungssambandi Vestfirðinga en hugmyndin kemur upprunalega frá Ferðamálasamtökum Vestfjarða, sem sýnt hefur verkefninu mikinn áhuga. Umhverfisvottun Vestfjarða er mikilvægur liður í stefnu þeirra og fyrir nokkrum árum var haldið málþing á vegum samtakanna á Núpi í Dýrafirði um umhverfisvottun.

Umhverfisvottun hefur einnig verið eitt af viðfangsefnum síðustu Fjórðungsþinga Vestfirðinga og greinilegur áhugi sveitarstjórnafulltrúa á málefninu. Það var sveitarstjórn Strandabyggðar sem lagði upphaflega fram tillögu á þeim vettvangi á Hólmavík 2010, um umhverfisvottun Vestfjarða allra. Í upphaf ársins 2012 fékkst fjárstyrkur frá umhverfisráðuneytinu vegna undirbúningsvinnu og hefur með þeim styrk sem þetta fyrsta skref hefur verið tekið.

EarthCheck eru viðurkennd vottunarsamtök sem hafa höfuðstöðvar sínar í Ástralíu, þau eru einu vottunarsamtökin sem hafa umhverfisvottað starfsemi sveitarfélaga. Á Íslandi er fyrirtækið Grænir hælar umboðsaðilar fyrir EarthCheck, en það er rekið af Guðrúnu Bergmann sem hefur starfað að umhverfismálum, umhverfisvænni ferðaþjónustu og umhverfisráðgjöf í meira en 20 ár. Guðrún vann einnig náið með Snæfellsnesi þegar sveitarfélögin þar fengu vottun frá EarthCheck.