29/04/2024

Leikjanámskeið Náttúrubarnaskólans og Strandabyggðar í næstu viku

klappakollu

Nú er lokið einu vikulöngu leikjanámskeiði í Náttúrubarnaskólanum í Sævangi við Steingrímsfjörð í samstarfi við sveitarfélagið Strandabyggð. Annað vikunámskeið er framundan dagana 20.-24. júní 13:00-17:00 (5 dagar). Námskeiðið eru hugsað fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Það er niðurgreitt af sveitarfélaginu Strandabyggð og kostar 10.000.- fyrir börn búsett í Strandabyggð, en 15.000.- fyrir aðra.

Náttúrubarnastrætó mun ganga frá Grunnskólanum á Hólmavík og út á Sauðfjársetur kl. 12:45 alla dagana og til baka til Hólmavíkur eftir námskeiðið. Kökur og djús eru innifaldar svo enginn verður svangur. Það borgar sig að vera vel klæddur fyrir mikla útivist. Námskeiðið inniheldur fleiri leiki en hefðbundin Náttúrubarnaskólanámskeið en engu að síður er líka lögð áhersla á að skoða náttúruna, fara í gönguferðir og gera fleira skemmtilegt. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Skráning fer fram í s. 661-2213 (Dagrún Ósk) eða s. 846-0210 (Íris) , á natturubarnaskoli@gmail.com eða á facebook.com/natturubarnaskolinn.