24/04/2024

Jón Eðvald Halldórsson orðinn kaupfélagsstjóri

Jón og JónÍ gær skrifaði Óskar Torfason stjórnarformaður Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík undir starfssamning við Jón Eðvald Halldórsson frá Drangsnesi. Jón Eðvald tekur við starfi kaupfélagsstjóra þann 15. maí næstkomandi af Jóni Eðvald Alfreðssyni afa sínum sem hefur þá verið rúm 41 ár í starfi kaupfélagsstjóra. Kaupfélag Steingrímsfjarðar var stofnað 29. desember 1898 og hefur því verið starfandi á þrem öldum og hefur gengið í gegnum allar þær kreppur sem oftast eru nefndar þegar vitnað er í söguna.

Í fréttatilkynningu frá KSH segir að Jón Eðvald yngri taki við þegar hagfræðingar spái því að efnahagslægðin verði hvað dýpst hér á landi og mun reyna verulega á hann og aðra sem að því koma, að stýra KSH við þær erfiðu aðstæður.

Jón er fæddur og uppalinn Strandamaður og bjó lengi vel á Drangsnesi. Árið 2005 útskrifaðist Jón frá Háskólanum á Akureyri með B.Sc gráðu í sjávarútvegsfræðum viðskiptatengt  og mun nú í vor ljúka meistaranámi í sjávarútvegsfræðum frá sama skóla. Undanfarin 5 ár hefur Jón átt fasta búsetu á Akureyri og á hann sambýliskonu og tvö börn.

bottom

Stjórn KSH með nýjum kaupfélagsstjóra

frettamyndir/2009/580-ksh-stjori1.jpg

Nafnarnir Jón E. Alfreðsson og Jón Eðvald Halldórsson