26/04/2024

Lánsfé, rekstrarörðugleikar og hlutafjármarkaður á Sauðamessu

FjörSauðamessa 2008 verður haldin í Borgarnesi í dag, laugardaginn 4. oktober, og hefst kl. 13.30 að staðartíma með fjárrekstri eftir aðalgötunni í Borgarnesi. Að sjálfsögðu verður eingöngu lánsfé í rekstrinum (fengið að láni frá góðbændum í héraði), og fastlega er búist við rekstrarörðugleikum. Því taka messuhaldarar fagnandi öllum sem lopavettlingi geta valdið og vilja koma í fyrirstöðu, en annars er það engin fyrirstaða fyrir féð  að hverfa út í buskann eins og algengt er með fé á Íslandi þessa dagana. Vegna þess hefur reyndar verið ákveðið að fá viðbótarfjármagn og því verða kindurnar fleiri en nokkru sinni fyrr.

Féð verður rekið inn í fjárþröng (rétt) við Skallagrímsgarð og dagskrá á sviði hefst þar kl. 14.00. Á sviðinu skemmta m.a. Björgvin Frans, Danshópurinn Sporið, Jóhann Sigurðarson og Þorsteinn Gauti, Freyjukórinn, ungi víkingurinn Þórður Brynjarsson, Hvanndalsbræður ofl. Kynnir er Sveinbjörn Eyjólfsson.

Ert þú í O flokki eða 1. flokki +??
 
Ýmis önnur afþreying verður í boði, s.s. sætaferðir á heyvagni, íslandsmótið í vettlingatökum, sparðatýningur, smalahundasýning,  átkeppni, leitin að nál í heystakki, hestaferðir o.fl. Sauðamarkaður verður í Skallagrímsgarði en þar verða bændur og búalið, handverksfólk og fleiri með afurðir sínar og varning til sölu og mun Sauðfjársetur á Ströndum taka þátt í þeim hluta dagskrárinnar. Þá ætlar Landbúnaðarháskóli Íslands að bjóða upp á ókeypis kjötflokkun og fitumælingar fyrir fólk. Einnig má nefna að nú verður í fyrsta sinn krýndur Sauður ársins og Ær ingi ársins en það eru æðstu metorð Sauðamessunnar.

Hlöðuball í reiðhöllinni

Sauðamessu 2008 lýkur svo með hrikalegu hlöðuballi í nýju reiðhöllinni í hesthúsahverfinu ofan við Borgarnes. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi af öllum lífs- og sálar kröftum frá kl. 22.00-02.00. Aldurstakmark er 16 ár og miðaverð 2000 kr. og kemur fram í tilkynningu að snyrtilegur klæðnaður er bannaður. Boðið er upp á ókeypis sætaferðir úr Borgarnesi á ballið með Sæmundi, þannig að nú gefst kærkomið tækifæri til að sletta ærlega úr klaufunum!!!!

Þess ber að geta að Jón bóndi Eyjólfsson, á Kópareykjum (þ.e. Jón á Kópa) hefur verið skipaður fjölmiðlafulltrúi Sauðamessu sem felur í sér að hann tekur að sér fínni viðtöl í vandaðri fjölmiðlum. Síminn hjá honum er tvær langar og ein stutt eða 893-6538. Aðar upplýsingar gefur Gísli Einarsson í síma 899-4098, en einnig er hægt að skoða vefsíðuna www.saudamessa.is.