29/04/2024

Kynning á leiklistarnámskeiði í kvöld

Nýr gestur í Skelinni á Hólmavík – lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu – þessa vikuna er Helena Berglund leiklistarkennari frá Svíþjóð. Hún stundar nú mastersnám í leiklistarkennslu í Kaupmannahöfn en hún hefur líka lært félagsráðgjöf. Í starfi sínu sem leiklistarkennari hefur hún unnið töluvert með börnum og ungmennum og hefur hún mikinn áhuga á leiklist sem aðferð til sjálfstyrkingar. Hún er hingað komin til þess að kenna leiklistarnámskeið sem hún nefnir Persónusögur. Helena býður fólki í Skelina í kvöld, miðvikudag 26. jan. kl. 21, í smá kaffispjall og kynningu á sér og námskeiðinu. Allir eru velkomnir.

Allir eiga sér sögu og allar persónusögur eru byggðar á mörgum smærri sögum. Með því að tala saman og spyrja spurninga munum við finna saman þessar sögur. Við munum leita að fyndnum, harmrænum, hetjulegum, heimspekilegum, spennandi og heimskulegum augnablikum úr lífi hvers og eins þátttakanda. Við munum þróa, breyta og ýkja kannski aðeins þessar sögur og að lokum búa þær til flutnings í lok námskeiðsins.

Að vinna með persónusögu hvers og eins er góð leið til að vinna með leikræna tjáningu án mikils umfangs, þ.e.a.s hver og einn getur valið sér form eða hversu mikið hann sviðsetur sína sögu. Hægt er að vinna með hefðbundinn sagnaflutning, trúðaleik eða einhvers konar gjörning – allt eftir þeim tíma og vinnu sem hver og einn setur í sína eigin persónusögu.

Gert er ráð fyrir að kennslan fari fram á bæði ensku og skandinavísku en sjálfar sögurnar verði á íslensku. Þátttökugjald er 3000 kr. og fer skráning og greiðsla fram á staðnum.