25/04/2024

Fuglanámskeið á Hólmavík

Mislit kríueggFréttatilkynning
Haldið verður námskeið um fugla og fuglaskoðun á Hólmavík þann 2. maí næstkomandi. Efni námskeiðsins verður um íslenska varpfugla og farfugla sem fara hér um. Farið í greiningar á nokkrum tegundum, búsvæði, hvar og hvenær ákveðnar tegundir er best að sjá. Einnig verður farið í stofnstærðir ákveðna tegunda, lög, reglur og alþjóðlegar samþykktir. Að lokum farið í vettvangsferð á Hólmavík eða nágrenni Hólmavíkur. Námskeiðið er einkum ætlað fólki í ferðaþjónustu sem tekur á móti gestum sem áhuga hafa á fuglum og fuglaskoðun, en allir eru velkomnir.

Kennari: Böðvar Þórisson   
Verð: 9.900.- kr
Staður: Þróunarsetrið á Hólmavík
Tími: Laugardaginn 2. maí kl. 10-16. Skráning til 27. apríl, mánudag.
Skráning: Fræðslumiðstöð Vestfjarða símar 451 0080 og 867 3164, stina@holmavik.is.