04/05/2024

Kvæðaperlur úr Kaldrananeshreppi

Vönduð bókLjóðabókin Kvæðaperlur úr Kaldrananeshreppi er komin út. Í bókinni eru ljóð og vísur eftir 24 höfunda sem allir hafa átt heima í Kaldrananeshreppi einhvern tíma á lífsleiðinni. Þetta er virkilega eiguleg bók og skemmtileg til lestrar. Bókin verður til sölu á Bryggjuhátíðinni og eins er hún til sölu í verslun KSH á Drangsnesi og í Sundlauginni einnig. Þá er ætlunin að koma henni í sölu víðar, svona þegar um hægist hjá Bryggjuhátíðarfólki. Menningarráð Vestfjarða styrkti útgáfu bókarinnar og er ekki víst að af útgáfu hefði orðið ef ekki væri fyrir þann stuðning sem þar fékkst. Bókin kostar 3500 krónur en verður á sérstöku Bryggjuhátíðar tilboði seld á 3000 kr.