02/05/2024

Karaoke-keppni í Bragganum 23. október

Laugardaginn 23. október verður karaoke-keppni Café Riis haldin í sjötta sinn í Bragganum á Hólmavík. Tugir keppenda hafa stigið á svið, en sigurvegarar fyrri ára eru Stefán Steinar Jónsson, Sigurður Vilhjálmsson, Salbjörg Engilbertsdóttir, Árdís Rut Einarsdóttir og Eyrún Eðvaldsdóttir. Til að hægt sé að halda keppnina þarf hins vegar fyrst að fá keppendur til leiks og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við Báru í s. 897-9756. Veglegir vinningar verða í boði.

Atriðin mega innihalda einstaklinga, dúetta, sönghópa, gógópíur, dansara, lífverði og hver þau hlutverk sem menn vilja draga fram í dagsljósið. Engin takmörk eru sett á listræna tjáningu eða búningaglamúr – meira er betra og skrítnara er skemmtilegra.

Hægt verður að æfa í Bragganum hvenær sem er frá laugardeginum 16. október fram að keppniskvödinu. Þar verður jafnframt hægt að nálgast nokkur hundruð karaoke-lög á diskum, en einnig geta þeir allra hörðustu keypt lög á öruggum vefsíðum eins og www.karaoke-version.com.