26/04/2024

Jólaspjall Þjóðfræðistofu í Bragganum

Laugardaginn 19. desember mun Þjóðfræðistofa blása til þjóðfræðiþings, útgáfuhófs og menningardagskrár og hefst fjörið í Bragganum á Hólmavík kl. 13:00. Dagskráin ber heitið Jólaspjall og eru allir velkomir. Auk þess að miðla af rannsóknum, verður leikin tónlist, sýndar kvikmyndir og haldið upp á nýjar útgáfur. Þá munu höfundar lesa upp úr nýútgefnum bókum. Café Riis býður upp á létt jólahlaðborð á vægu verði.

Á dagskránni eru eftirfarandi atriði:

* Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu, segir frá starfseminni á árinu
* Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur, segir frá nýútkominni bók sinni Eve Online sem gefin er út af Þjóðfræðistofu
* Jón Þór Pétursson þjóðfræðingur, segir frá mastersverkefni sínu og rannsóknarverkefni Þjóðfræðistofu um íslenska matarhefð
* Katla Kjartansdóttir verkefnastjóri á Þjóðfræðistofu, segir frá samtímasöfnun á leikjum íslenskra barna
* Sigurður Atlason framkvæmdastjóri Strandagaldurs, kynnir samstarfsverkefni um jólaendurminningar Strandamanna

Heimildamyndin Leitin að Gísla Suurinpojka
Jón Jónsson menningarfulltrúi og þjóðfræðingur, flytur jólahugvekju
Söngflokkurinn Fúmm fúmm fúmm flytur jólalög

Höfundar lesa upp úr nýútkomnum jólabókum:
Vilborg Davíðsdóttir – Auður
Eiríkur Örn Nordahl – Gæska

Allir hjartanlega velkomnir.