
Jólahlaðborðið á Café Riis hefur verið einn af föstu viðburðum fyrir jólin á Hólmavík frá því að Café Riis opnaði árið 1996. Það eru ennþá laus nokkur sæti bæði kvöldin svo það er vissara að hafa hraðan á og tryggja sér þátttöku í tíma.
Maður verður eitthvað að lesa, annars verður maður ekkert nema magi og munnur, skrifaði skáldið Stefán G. Stefánsson. En það er hægt að grípa í bók og myndast við að næra sálina eftir stórkostlegt ofát á Café Riis og sætta sig við að maturinn er mannsins megin, ef allt fer á versta veg. Héraðsbókasafnið á Hólmavík er opið til kl. 21:00 á fimmtudagskvöld. Kvöldið áður en matarveislan byrjar.