28/04/2024

Járn fauk af fjárhúsþaki

Talsvert tjón varð að bænum Melum I í Árneshreppi í nótt eða morgun í rokinu þegar járnklæðning fauk af fjárhúsum að mestu leyti öðru megin. Fé sakaði ekki og verður það flutt í önnur fjárhús til bráðabirgða þangað til hægt verður að setja nýtt þak á fjárhúsin. Mikið rok var í nótt og fram á morgun. Á veðurstöðinni í Litlu-Ávík var vindur suðlægur klukkan sex í morgun og jafnavindur 28 m/s og kviður í 36 m/s eða í 12 gömul vindstig. Frá þessu segir á www.litlihjalli.it.is.

Fjárhúsþakið er mikið skemmt – Ljósm. Jón G.G.