28/04/2024

Jafntefli í fyrstu tilraun!

Tippararnir Þröstur Áskelsson og Jón Jónsson skildu hnífjafnir í fyrstu umferð tippleiks strandir.saudfjarsetur.is nú fyrr í dag með 6 leiki rétta hvor. Þeir þurfa því að eigast við aftur á næstu helgi, en þá mun getraunaseðillinn samanstanda af landsleikjum. Þröstur og Jón skiptust á um að hafa forystuna á meðan leikir dagsins voru í gangi en þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma hafði Þröstur eins stigs forskot á Jón – með sex stig gegn fimm. Derby jafnaði hins vegar gegn Burnley á elleftu (eða tólftu) stundu og þar með græddi Jón eitt stig. Lokatölur 6-6 í æsispennandi tippkeppni.

Hægt er að sjá spár og umsagnir kappanna með því að smella hér og úrslitin einnig hér að neðan. 

    Úrslit Jón  Þröstur
         
1 TOTTENHAM-CHELSEA    2 1 X
2 FULHAM-EVERTON 1 2 1
3  WEST HAM-BOLTON        2 X 1
         
4 A.VILLA-BLACKBURN       1 1 1
5 MAN.CITY-PORTSMOUTH 1 1 1
6 WIGAN-SUNDERLAND       1 1 1
         
7 Leicester-Luton     2 1 1
8  CARDIFF-WOLVES       1 2 2
9  Sheff.Utd.-Coventry     1 X X
         
10 BURNLEY-DERBY            X X 2
11 Southampton-Crewe      1 1 1
12 NORWICH-LEEDS  2 1 1
13 C.PALACE-STOKE     1 1 1
       6 réttir 6 réttir