29/04/2024

Íþróttafélög á Ströndum fá styrk úr Íþróttasjóði

Á heimasíðu menntamálaráðuneytis kemur fram að menntamálaráðherra hafi í
dag samþykkt tillögur Íþróttanefndar um styrkveitingar árið 2008. Tvö
íþróttafélög á Ströndum fengu styrki úr íþróttasjóði að þessu sinni samtals að
upphæð kr. 500.000. Golfklúbbur Hólmavíkur fékk styrk að upphæð kr. 300.000 úr
sjóðnum til kaupa á ýmsum áhöldum auk sláttuvélar og Ungmennafélagið Geislinn
fékk styrk vegna byggingar fótboltavallar í Brandskjólum á Hólmavík og búnaðs
til frjálsíþróttaiðkunar samtals að upphæð kr.  200.000. Íþróttasjóður veitir
framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að
    bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
  2. Útbreiðslu- og
    fræðsluverkefna
  3. Íþróttarannsókna.
  4. Verkefna samkvæmt 13. gr.
    íþróttalaga.

Alls bárust 158 umsóknir um styrki úr Íþróttasjóði að upphæð
177 m.kr. vegna ársins 2008.