27/04/2024

I´m a cop í Reykjavík og á Ísafirði

Þessa dagana er verið að sýna einleikinn I’m a cop á artFart í Reykjavík og eru sýningar í kvöld kl. 21:00 og á sunnudagskvöld kl. 21:00 í Útgerðinni, Grandagarði 16. Það er Strandamaðurinn og leikarinn Smári Gunnarsson sem er gestgjafi, höfundur, leikstjóri og leikari. Miðasala fer fram á midapantanir@artfart.is og s. 6639444. Leikritið er 35 mín og er leikið á ensku. I’m a cop verður einnig sýnt á vestfirsku einleikjahátíðinni Act Alone síðar í mánuðinum.

I’m a Cop er saga um mann sem er sérstaklega umhugað um hvernig hann er séður af öðrum. Náttúrulegir eiginleikar hans eru á skjön við það starf sem hann hefur valið sér og hann á í endalausri baráttu við að hækka sinn persónulega status í samskiptum við aðra svo hann virðist eins mikilvægur og hann getur mögulega orðið. Tilvistarkreppa, valdsýki, löngunin að vera "Einhver" og eiga einhvern að eru meðal þema sem eru tekin fyrir í þessari ákveðnu skopstælingu af Hollywood löggunni. Verkið er devised og var skapað útfrá rannsóknarvinnu höfundar um status.