24/04/2024

Stefnumótun fyrir Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019

gang10

Nú er komið að því að vinna stefnumótunarvinnu fyrir Sóknaráætlun Vestfjarða árin 2015-2019, í samræmi við fyrirhugaðan samning milli ríkis og sveitarfélaganna um þetta efni. Ákveðið hefur verið að halda þrjá opna fundi á Vestfjörðum til að safna hugmyndum og forgangsraða þeim. Öllum er heimilt að mæta á fundina og taka þátt í vinnunni. Uppkast að áætluninni verður svo birt á vef Fjórðungssambandsins í framhaldinu og þá verður hægt að gera athugasemdir og koma með tillögur. Fundur í félagsheimilinu á Hólmavík verður haldinn þriðjudaginn 13. janúar og hefst kl. 15:00.

Í nýrri Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 á að fjalla um nýsköpun og atvinnuþróun, menningarmál, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilega þróun á svæðinu. Á fundunum verður fjallað um stöðu Vestfjarða í þessum málaflokkum í stuttum kynningum og síðan unnið í hópum við hringborð. Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur umsjón með vinnunni og nýtur aðstoðar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Allir sem áhuga hafa á byggðamálum og framtíð Vestfjarða eru hvattir til að mæta á fundina og taka þátt í vinnunni.

Nánar má fræðast um fundina og nálgast ítarefni á www.vestfirdir.is.