27/04/2024

Íbúaþing í Árneshreppi

Árneshreppur, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Byggðastofnun halda íbúaþing í Árneshreppi dagana 12. og 13. júní. Þingið verður haldið í félagsheimilinu í Árnesi og er ætlað fyrir íbúa í sveitarfélaginu og þá sem eiga rætur eða dvelja þar hluta úr ári. Hægt er að mæta báða dagana eða í styttri tíma, en ekki þarf að skrá þátttöku. Íbúafundurinn er vettvangur til að ræða málefni sem skipta íbúa Árneshrepps máli og leita leiða til að renna styrkari stoðum undir byggðina. Þátttakendur sjálfir móta dagskrána, en m.a. verður rædd endurnýjun umsóknar sveitarfélagsins um þátttöku í verkefninu „Brothættar byggðir“ hjá Byggðastofnun.

Tímaramminn er þannig:
Mánudaginn 12. júní kl. 16.30 – 21.30: Hugmyndavinna
Þriðjudaginn 13. júní kl. 13.00 – 16.00: Forgangsröðun

Boðið verður upp á kjötsúpu um kvöldmatarleytið á mánudeginum og kaffiveitingar að þingi loknu á þriðjudeginum. Það er Ildi ehf sem heldur utan um skipulagningu fundarins, en fundarstjóri er Sigurborg Kr. Hannesdóttir.