Þeir sem leið eiga um Gálmaströnd, yst við sunnanverðan Steingrímsfjörð, geta nú skoðað sannkallaðan hvalreka sem gefur að líta þar í fjöruborðinu. Þar liggur heilmikið flykki sem barst á land nýverið, stærðarinnar steindauður hvalur, bæði götóttur og grotnaður. Gálmaströnd sem er í landi jarðarinnar Þorpa hefur löngum verið ein besta rekaströnd landsins enda liggur hún vel við norðaustanáttinni.
![](wp-content/uploads/kort/150-kort_hvalreki.gif)
![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/580-hvalreki-galma2.jpg)
Ljósm. Ásdís Jónsdóttir og Karl Þór Björnsson