28/04/2024

Hraðakstur í nágrenni Hólmavíkur

Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum um verkefni síðustu viku kemur fram að talsverður erill var liðna helgi vegna ölvunar gesta á skemmtistöðum. Þá voru átta ökumenn stöðvaðir vegna hraðakstur, sjö á Djúpvegi í nágrenni við Hólmavík og einn við Ísafjörð. Sá sem hraðast ók, var mældur á 115 km/klst., þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90. Þá var einn ökumaður kærður vegna gruns um ölvun við akstur.  

Fimm umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu, þar af eitt umferðarslys í Skötufirði á Djúpvegi á föstudagskvöld, þar hafnaði bifreið út fyrir veg og valt. Ökumaður sem var einn í bílnum var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar. Bifreiðin óökufær og flutt af vettvangi með kranabíl. Þá var tilkynnt um þrjú tilvik til lögreglu þar sem ekið hafði verið á búfé.

Á þriðjudag barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk á fótboltavellinum við Torfunes á Ísafirði, þar hafði bifreið verið ekið út á völlinn. Talsverðar skemmdir hlutust af þessu og er málið í rannsókn. Þá var tilkynnt í vikunni um skemmdarverk í Bolungarvíkurgöngunum, þar höfðu vegstikur verið rifnar upp og hent út á götu.  Það mál er einnig í rannsókn. Þeim sem gætu gefið einhverjar upplýsingar um þessi skemmdarverk er bent á upplýsingasíma lögreglunnar á Vestfjörðum er 450-3730

Á föstudagskvöld kom upp eldur í risíbúð við Aðalstræti á Ísafirði, þar sem kviknaði í út frá lampa. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en nokkrar skemmdir urðu.