20/04/2024

Námskeið um aðlögun að lífrænni sauðfjárrækt

Landbúnaðarháskóli Íslands verður með námskeið í lífrænni aðlögun sauðfjárræktar í Tjarnarlundi í Saurbæ, föstudaginn 1. apríl, kl. 12:45-17:00, í samstarfi við vottunarstofuna Tún. Námskeiðið er ætlað þeim sem stunda sauðfjárrækt og hafa áhuga á að kynna sér möguleika sína á upptöku lífrænna aðferða og á markaðssetningu lífrænna sauðfjárafurða. Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti aðlögunar að lífrænni sauðfjárrækt, einkum fóðurframleiðslu, aðbúnað og heilbrigði sauðfjár. 

Fjallað verður um vandamál sem tengjast húsakosti, beitarstjórnun, heyöflun og sjúkdómum, og gerð grein fyrir fenginni reynslu bænda og dýralækna af lausn þeirra með náttúrulegum, fyrirbyggjandi aðferðum.

Þá verður fjallað um skýrsluhald, eftirlit og vottun lífrænnar sauðfjárræktar, og aðra þætti sem huga þarf að við markaðssetningu lífrænna afurða.

Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða í síma 433 5033 / 433 5000.
Verð: 14.000 kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu Landbúnaðarháskólans, www.lbhi.is.

Síðasti dagur til að skrá sig er 23. mars.