08/05/2024

Hinir hafa ekki hundsvit á formúlunni

Jón Gísli Jónsson veghefilsstjóri og bílaáhugamaður með meiru er kampakátur þessa dagana að venju, en honum hefur vegnað afar vel í liðsstjóraleik formúlunnar þar sem hann etur kappi við aðra Strandamenn í deildinni strandir.saudfjarsetur.is. Liðið hans hefur trjónað á toppnum frá upphafi og Jón Gísli er afar sigurviss: „Auðvitað sigra ég," segir Jón Gísli „það gefur alveg auga leið, því það hefur enginn í deildinni jafn yfirgripsmikla þekkingu á sportinu og ég, aðrir þátttakendur virðast ekki hafa hundsvit á formúlunni."

Jón Gísli segist hafa byrjað að fylgjast með Formúlunni fyrir löngu síðan, en viðurkennir að það hafi þó ekki verið sportið sem slíkt sem hafi í upphafi heillað hann mest. „Það var á þeim árum meðan kvensemin kvaldi mig sem mest líkt og aðra unga menn að ég rak augun í að íturvaxið kvenfólk sveimar gjarnan í kringum brautirnar. En með árunum hef ég fengið meiri áhuga á að taka í bílana og þegar ég komst til vits og ára þá áttaði ég mig á því að sportið gengur út á að komast sem lengst á sem allra stystum tíma. Það er nú ein ástæðan fyrir því hvað mér vegnar vel í keppninni, ég er nánast hættur að missa mig út í aukaatriðin." Jón Gísli segist gruna að að langflestir sem taki þátt í liðsstjóraleik strandir.saudfjarsetur.is ættu hreinlega að hætta að hugsa um leikinn, því árangur þeirra sé ekki upp á marga fiska í ár. „Mér sýnist að það séu ekki nema einn eða tveir auk mín sem hafa erindi í þennan netleik, og að flestir aðrir ættu að finna sér eitthvað auðveldara til dundurs á netinu, t.d. að spila skák eða eitthvað. Þeir verða þá líka fyrir minni vonbrigðum þegar ég lyfti bikarnum kokhraustur á loft í haust".

Jón Gísli eða Óleyniskussi eins og hann kýs að nefna liðið sitt í Liðsstjóraleiknum segir að hann yrði hæstánægður ef hann fengi að setjast undir stýri á einum bílanna og fá að aka honum eins og einn hring eða tvo: „Stundum þegar ég er á vinna á vegheflinum í norðaustan skaðræðisbyl, svo sér ekki fram fyrir tönnina fyrir veðurofsa þá á ég það til að halla mér aftur í sætinu, gefa vel í og láta mig dreyma um að ég sé á einhverri formúlubrautinni. Það er nefnilega hægur vandi hér á Ströndum þar sem vegirnir hlykkjast þvers og kruss." Aðspurður segir Jón Gísli að hann sjái engin lið sem geti mögulega velt Óleyniskussa úr fyrsta sætinu í ár. „Ég verð þó að virðurkenna að stjórnendur liðanna sem eru núna í 9unda sæti og því 29unda gætu orðið Óleyniskussa skeinuhættir, ef lukkan snýst í lið með þeim."

Eftirfarandi er staðan í keppninni hjá strandir.saudfjarsetur.is í Liðsstjóraleiknum eftir síðustu keppni. Eins og sjá má þá ber Jón Gísli höfuð og herðar yfir aðra keppendur á Ströndum, svo notað sé hans orðalag, en hann er einnig í 21. sæti í landskeppninni af 3500 keppendum. Lið Jóns Gísla náði þó ekki nema öðrum besta árangri af Strandaliðum í síðustu keppni en liðið Mosi nældi sér í fleiri stig í þeirri keppni. Þar á eftir komu svo liðin Jordan, Súber.is og Prins. Þessi fimm lið skapa því samtölu strandir.saudfjarsetur.is í sveitarkeppninni yfir landið, en sú sveit er í 7. sæti á landsvísu af 385 sveitum. Nánar má fræðast um þennan skemmtilega leik á www.lidsstjorinn.formula.is.

1. Óleyniskussi – 7826 – Jón Gísli Jónsson
 2. Súber.is – 7231 – Árni Baldursson
 3. bb&synir#1 – 7154 – Benedikt Benediktsson 
 4. seigur – 6968 – Magnús Gústafsson
 5. Glundroð i – 6864 – Arnar S. Jónsson
 6. TRÍTON – 6710 – Jón Halldór Kristjánsson
 7. Dino – 6656 – Þröstur Áskelsson
 8. Tara – 6610 – Hafdís Stefánsdóttir
 9. Fundni skussi2 – 6548 – Jón Gísli Jónsson
 10. dvergarnir7 – 6504 – Jón Jónsson 
 11. Jordan – 6456 
 12. Prins – 6308 
 13. KIMI MCLAREN – 6305 
 14. Snati – 6172 
 15. Ísjakinn mikli – 6089 
 16. VRT (viking racing team) – 6062 
 17. Skrímslið sem skína lætur í tennurnar – 5855 
 18. Basilíuslangan – 5803 
 19. Mosi – 5738 (18)
 20. Leynimúli – 5587 
 21. Grameðlan – 5547
 22. Hulk – 5436
 23. tinkí-vinkí – 5178
 24. Skrúfjárn – 4995
 25. kaldi – 4877
 26. Bestur.is – 4855
 27. Ble-si – 4707
 29. Skussa – 4017

.
Jón Gísli hugar að smíði síns eigin Formúlubíls