26/04/2024

Fundur um strandsvæðaskipulag í Noregi

ÖrkinFjórðungssamband Vestfirðinga stendur fyrir fundi um strandsvæðaskipulag í Noregi og verður hann haldinn föstudaginn 27. júní kl 10.30 í Háskólasetri Vestfjarða og í fjarfundi í Skor, þróunarsetri á Patreksfirði, og í Grunnskólanum á Hólmavík. Fundurinn er öllum opin, en sérstaklega beint að sveitarstjórnum, skipulagsyfirvöldum, fyrirtækjum og þeim aðilum er stunda rannsóknir og kennslu á þessu sviði. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Fjórðungssambands Vestfirðinga í síma 450-3001 eða 862-6092. Skráning á fundinn er á tölvupóstfangið skrifstofa@fjordungssamband.is.

Í fréttatilkynningu um fundinn kemur fram að frummælandi verður Gunnar Davíðsson, sjávarútvegsfræðingur,  deildarstjóri á skrifstofu Tromsfylkis í Tromsö, Noregi. Hann mun annarsvegar fjalla um þróun í gerð strandsvæðaskipulags í Noregi á síðustu árum og væntanlegar breytingar á því sviði. Hins vegar til hvaða þátta hefur verið horft til við gerð strandsvæðaskipulags.

Tilefni fundarins er að Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur sett fram þá tillögu til vestfirskra sveitarfélaga að hefja gerð svæðisskipulags fyrir Vestfirði. Við gerð þessa svæðisskipulags hefur einnig verið ákveðið að taka til skoðunar skipulag strandsvæða, þ.e. svæðis utan netlagnar og þarf af leiðandi utan stjórnsýslu sveitarfélaganna. 

Hér yrði um að ræða reynsluverkefni á Íslandi en engin ákvæði eru til um gerð slíks skipulags hér á landi, en skipulag af slíku tagi er þekkt erlendis, m.a. í Noregi. Miðað við reynslu annarra þjóða, þá mun á komandi árum verða aukin ásókn í nýtingu strandsvæða. Nefna má þar fiskeldi, skelrækt, ferðaþjónustu, orkuframleiðslu, hefðbundnar fiskveiðar og aukin áhersla á verndun náttúru og menningar. Til lengri tíma litið verður að telja, að verulegir hagsmunir séu í húfi fyrir sveitarfélög, íbúa þeirra og atvinnulíf, að sem best takist til við skipulag starfsemi á strandsvæðum og þar verði unnið innan skilvirks kerfis líkt og við gerð skipulags á landi.