01/05/2024

Fundur í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps

Vefnum strandir.saudfjarsetur.is hefur borist fundargerð frá fundi hreppsnefndar Hólmavíkurhrepps sem haldinn var í gær og birtum við hana í heilu lagi hér að neðan. Í henni kemur t.d. fram að rætt var um sameiningu hreppsins og Broddaneshrepps á fundinum. Sveitarstjóra var einnig falið að gera tillögu að samræmdri gjaldskrá vegna grenjavinnslu í hreppnum, þannig að svo virðist sem ekki hafi verið samræmi í greiðslum til þessa.

Fundur í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps:

Ár 2006 þriðjudaginn 11. apríl var haldinn fundur í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps. Fundurinn var haldinn á skrifstofu hreppsins og hófst hann kl. 17:00.
 
Haraldur V. Jónsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum, en auk hans sátu fundinn Elfa Björk Bragadóttir, Valdemar Guðmundsson, Kristín S. Einarsdóttir og Daði Guðjónsson varamaður. Auk þeirra sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri. Fundarritari var Engilbert Ingvarsson.

Þetta var gert:

Oddviti bar upp tillögu um afbrigði við boðaða dagskrá að 6.mál verði: Fundargerð Byggingar-, umferðar-og skipulagsnefndar og 7. mál: Trúnaðarmál. Afbrigðið var samþykkt með öllum atkvæðum.

Oddviti kynnti þá eftirfarandi dagskrá:

1. Erindi frá Indriða Aðalsteinssyni um samræmingu á starfskjörum í Hólmavíkurhreppi vegna grenjaleitar.
2. Beiðni um inngöngu nýs félaga í Slökkvilið Hólmavíkur.
3. Kynning á stöðu mála vegna sameiningar Broddaneshrepps og Hólmavíkurhrepps.
4. Fundargerð Menningarmálanefndar dags. 2. og 9. mars 2006.
5. Fundargerð skólanefndar M.Í dags. 27. febrúar 2006.
6. Fundargerð Byggingar-, umferðar-og skipulagsnefndar frá 10. apríl 2006.
7. Trúnaðarmál.

Þá var gengið til dagskrár:
 
1. Erindi frá Indriða Aðalsteinssyni um samræmingu á starfskjörum í Hólmavíkurhreppi vegna grenjaleitar.
Borist hefur bréf dags. 1. apríl 2006 frá Indriða Aðalsteinssyni á Skjaldfönn ásamt greinargerð um framkvæmd grenjavinnslu í Hólmavíkurhreppi. Samþykkt var samhljóða að þakka Indriða fyrir erindið og fela oddvita og sveitarstjóra að gera tillögu að samræmdri gjaldskrá vegna grenjavinnslu í hreppnum og leggja síðar fyrir hreppsnefnd.

2. Beiðni um inngöngu nýs félaga í Slökkvilið Hólmavíkur.
Lagt fram bréf frá slökkviliðsstjóra, um að Snorri Jónsson Austurtúni 7 Hólmavík, gerist liðsmaður Slökkviliðs Hólmavíkurhrepps. Erindið var samþykkt samhljóða.

3. Kynning á stöðu mála vegna sameiningar Broddaneshrepps og Hólmavíkurhrepps.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir sameiningu sveitarfélaganna, sem tekur gildi eftir hreppsnefndarkosningarnar í maí. Nokkrar umræður urðu um nafn á nýja sveitarfélaginu og aðferð við ákvörðum um nýtt nafn, sem kosið verður um. Í samræmi við sveitarstjórnarlög og bréf frá Félagsmálaráðuneyti er eftirfarandi bókað:

Hið sameinaða sveitarfélag skal taka yfir allt það land, sem nú tilheyrir áðurgreindum sveitarfélögum og íbúar beggja sveitarfélaganna verða íbúar hins sameinaða sveitarfélags. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra sveitarfélögunum skulu falla til hins sameinaða sveitarfélags. Skjöl og bókhaldsgögn sveitarfélaganna skulu einnig afhent hinu sameinaða sveitarfélagi til varðveislu. Kosningar í hinu sameinaða sveitarfélagi fara fram laugardaginn 27. maí 2006 og tekur sameiningin gildi 10. júní 2006 í samræmi við ákvæði 13. gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Kjósa skal 5 fulltrúa í sveitarstjórn hins nýja sveitarfélags sbr. 1. m.gr. 12. gr. sveitarstjórnarlaga.

4. Fundargerð Menningarmálanefndar dags. 2. og 9. mars 2006.
Lagðar fram fundargerðir Menningarmálanefndar, þar sem bókuð eru ýmis fyrirkomulagsatriði varðandi dagskrá á Hamingjudögum 29. júní til 2. júlí n.k. Lagt fram til kynningar.

5. Fundargerð skólanefndar M.Í dags. 27. febrúar 2006.
Borist hefur fundargerð frá 91. fundi skólanefndar Menntaskólans á Ísafirði. Lagt fram til kynningar.

6. Fundargerð Byggingar-, umferðar-og skipulagsnefndar frá 10. apríl 2006.
Lögð fram fundargerð B.U.S frá 10. apríl. Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

7. Trúnaðarmál.
Fjallað verðum um trúnaðarmál, sem bókað verður í trúnaðarbók.

Fundargerð lesin upp og samþykkt. Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:35.

Engilbert Ingvarsson (sign)
Kristín S. Einarsdóttir (sign)
Elfa Björk Bragadóttir (sign)
Haraldur V. A. Jónsson (sign)
Valdemar Guðmundsson (sign)
Daði Guðjónsson (sign)
Ásdís Leifsdóttir (sign)